Ég er að reyna að bögglast við starfsnámsskýrsluskrif, það gengur vægast sagt hægt! Hef úr miklu að moða, en kem því ekki niður á blað. Trúlega er enn of langt þangað til skilafresturinn rennur út, sem er í lok mars, að mér skilst. Þetta næst þó trúlega allt í góðum tíma. Hitt er annað mál að það er drulluerfitt að halda sig frá íslenska namminu sem býr uppi í skáp þessa dagana og dregur til sín ómælda athygli mína! Ég er búin að hakka í mig súkkulaðirúsínur í dag, svo maganum er um og ó. Ég er eiginlega við það að kasta upp, svona er að kunna sér ekki hófs! Isspiss... ojojoj...
Sæl skvís!
SvaraEyðaVá hvað þú ert búin að vera dugleg að blogga. Það er gaman að fylgjast með. Til hamingju með nýja kaggann - station kaggi geri ég ráð fyrir, hehe!! með miðjubelti ;)
Vertu svo dugleg að borða íslenskt sælgæti, lítil börn í bumbum kalla og heimta íslenskt sælgæti í slurkum - stórum!
Við á Íslandi erum farin að taka gleði okkar aftur þar sem að nú er klukkan að orðin 18.30 og nokkuð bjart úti ennþá. Mikið er það notalegt - og meira segja vor í lofti.
Við biðjum að heilsa bóndanum og börnunum.
Kveðja af Tjarnarbrautinni.
Milla.